Mikil ánægja ríkti á fundi stjórnar Akureyrarstofu síðdegis í gær vegna niðurstöðu Alþingis um Vaðlaheiðargöng og gerði hún eftir farandi samþykkt af því tilefni:
"Alþingi samþykkti nú síðdegis efnisgreinar frumvarps um fjármögnun Vaðlaheiðarganga. Alls sagði 31 þingmaður já, 18 sögðu nei og 6 greiddu ekki atkvæði um fyrstu grein frumvarpsins. Annarri umferð málsins er þar með lokið.
- "Stjórn Akureyrarstofu fagnar þessari niðurstöðu og hvetur Alþingi til að flýta endanlegri afgreiðslu málsins, svo ljúka megi undirbúningi og hefja framkvæmdir hið fyrsta."