Á morgun, sunnudaginn verður Akureyrarörninn heiðraður í sérstökum Jónsmessugjörningi í Ketilhúsinu og í Listasafninu á Akureyri. Þar verða meðal annarra þeri Hannes Sigurðsson sjónlistastjóri og Hannes Örn Blandon með hugvekjur. Í tilkynningu um gjörninginn semir m.a. að góði gamli Akureyrarörninn sé sko engin smásál. Þetta sé sjálfur fuglinn Fönix, gammurinn mikli, með feiknarlegt vænghaf sem nái þvert yfir Eyjafjörðinn. Hann sé tígulega ættaður úr íslenska skjaldarmerkinu og undir lok síðasta árs hafi fæðst sú hugmynd í félagsmiðstöð heldri borgara í Viðilundi og Bugðusíðu á Akureyri að gera bænum eitthvað glæsilegt til heiðurs á 150 ára afmælinu. Braust þá út agnarlítill goggur úr egginu og mörgum mánuðum síðar kom í ljós undurfagurt veggteppi úr hekluðum og prjónuðum mósaíkbútum, þar sem hver eining, samtals 3107 talsins, táknaði ólíka einstaklinga. Fæðingin heppnaðist sérlega vel, en afkvæmið var afhjúpað í félagsmiðstöðinni í vor. Örninn sest nú að yfir sumartímann í anddyri Listasafnsins á Akureyri. Verkið er unnið eftir hátíðarútgáfu af skjaldarmerki Akureyrarbæjar, en um það gilda sérstakar birtingareglur.
Efnt verður til samfagnaðar á morgun, sunnudaginn 24. júní, kl. 15, og eru allir velkomnir, og þá sérstaklega hinir þroskuðu listamenn.
Séra Hannes Örn Blandon og Hannes Sigurðsson sjónlistastjóri munu flytja hugvekjur í Ketilhúsi, við söng og bænalestur, en að því loknu leiða sr. Hannes og Hannes hópinn upp í Listasafnið til að votta þessum heilaga fugli virðingu sína. Linda Björk Óladóttir, listamaður og leiðbeinandi í handverki og listum, sá um að vinna tæknilegan undirbúning og hafði listræna umsjón með verkinu. Auk hennar komu Dóra Herbertsdóttir og Guðrún Heiða Kristjánsdóttir að hugmyndavinnu og verkefnastjórnun.