Bæjarráð Akureyrar krefst þess að norðaustur-suðvestur flugbraut Reykjavíkurflugvallar, hin svokallaða neyðarbraut verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnist. Bæjarráð skorar á borgarstjórn Reykjavíkur, innanríkisráðherra og Alþingi að beita sér í málinu.
„Í höfuðborg Íslands er eina hátæknisjúkrahús landsins. Það er því lífsnauðsynlegt að þangað sé ávallt greið leið með sjúklinga hvort sem er af höfðuborgarsvæðinu eða landsbyggðunum. Lokun Neyðarbrautarinnar svokölluðu á Reykjavíkurflugvelli hefur á undangengnum vikum leitt til þess að sjúkraflugvélar hafa ekki getað lent í Reykjavík né annars staðar á Suðvestur horninu með alvarlega veika einstaklinga, sem hafa þurft á bráðnauðsynlegri umönnun að halda á þessu eina hátæknisjúkrahúsi okkar landsmanna. Það er því ófrávíkjanleg krafa bæjarráðs Akureyrarkaupstaðar að Neyðarbraut Reykjavíkurflugvallar verði opnuð aftur þar til önnur og jafngóð lausn finnst,“ segir í bókun bæjarráðs.