Akureyrabær selur skuldabréf

Hjúkrunarheimilið við Vestursíðu.
Hjúkrunarheimilið við Vestursíðu.

Á fundi bæjarráðs í byrjun júní sl. var fjármálastjóra bæjarins falið að selja skuldabréf á markaði til að fjármagna framkvæmdir hjúkrunarheimilisins við Vestursíðu og jafnframt til að endurfjármagna stóra skuldabréfaútgáfu frá árinu 2003, sem er með gjaldaga í mars á næsta ári. Akureyrarbær hefur nú selt skuldabréf á markaði fyrir samtals 940 milljónir króna að markaðsvirði og því fjármagnað byggingarkostnað hjúkrunarheimilisins að fullu. Jafnframt var eigendum skuldabréfaflokksins AKU 03 1, sem fellur á gjalddaga á næsta ári, boðið að skipta yfir í ný skuldabréf. Rúmlega 9 af hverjum 10 eigendum í áðurnefndum skuldabréfaflokki ákváðu að þiggja boðið. Samtals er um að ræða 2.700.000.000 krónur sem eru því endurfjármagnaðar.

Akureyrarbær hefur nú að mestu lokið fjármögnun ársins ásamt því að fjármagna að stærstu leyti fyrirsjáanlega endurfjármögnunarþörf næsta árs. Sala skuldabréfanna gekk vel og sýnir góða stöðu Akureyrarbæjar og trú fjárfesta á Akureyrarbæ. Skuldabréfin voru seld miðað við 3,6% ávöxtunarkröfu sem eru bestu kjör sem Akureyrarbær hefur fengið við sölu skuldabréfa á markaði. Íslensk verðbréf hf. annaðist söluna á markaði fyrir hönd Akureyrarbæjar.

 

Nýjast