Áhuginn ekki lengur til staðar

Katrín Kristjánsdóttir.
Katrín Kristjánsdóttir.

„Ég er búin að eiga tvo erfiða vetur þar sem ég hef ekki náð þeim árangri á alþjóðavísu sem ég hefði viljað og það var farið að hafa áhrif á mig,“ segir landsliðskonan á skíðum, Katrín Kristjánsdóttir, hjá Skíðafélagi Akureyrar í samtali við Vikudag. Katrín lagði skíðin nokkuð óvænt á hilluna á dögunum, aðeins 21 árs að aldri. Hún er núverandi Íslandsmeistari í stórsvigi og hefur verið í fremstu röð íslenskra skíðakvenna undanfarin ár, þar sem hún hefur m.a. keppt á heimsmeistara-og Evrópumótum.

Nánar er rætt við Katrínu um ákvörðun hennar að hætta í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag. 

Nýjast