Afmæliskveðja til Akureyrarbæjar

Steingrímur J. SIgfússon.
Steingrímur J. SIgfússon.

Ég vil senda hinum blómlega og nýorðna 18 þúsund manna bæ góðar kveðjur og hamingjuóskir í tilefni 150 ára afmælisins. Akureyri hefur auðvitað mikla og skýra sérstöðu í hugum þeirra sem þar búa eða hafa búið um lengri og skemmri tíma. Undirritaður hefur verið verið með annan fótinn í bænum allt frá því ég bjó í bænum og gekk þar í Menntaskólann á Akureyri á sinni tíð og síðan sem þingmaður svæðisins í hartnær 30 ár.

Í huga mínum hefur Akureyri sérstöðu og skipar einnig veglegan sess í hugum allra landsmanna. Akureyri er borgin fyrir norðan, staðurinn sem jafnt sumar sem vetur er heillandi að sækja heim. Veðráttan, umhverið, útivistarmöguleikarnir, íþróttaáhuginn, maturinn, menning og listir. Það er sama hvar borðið er niður, Akureyri hefur upp á öll lífsins gæða að bjóða fyrir íbúa sína og gesti.

Kærar afmæliskveðjur,
Steingrímur J. Sigfússon, verðandi atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra og 1. þingmaður Norðausturkjördæmis

Nýjast