Viðskiptavinir Arionbanka á Akureyri eru brosandi út að eyrum í dag, en starfsfólkið býður öllum upp á afmælistertu í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar, frá klukkan 13-16. Já, já, það er ekki á hverjum degi sem bærinn fagnar 150 ára afmæli og við hjá Arion banka viljum auðvitað taka þátt í því og við gerum það meðal annars með því að bjóða upp á veglega afmælistertu. Unga kynslóðin fær líka blað með Andrési önd, hann er alltaf jafn vinsæll, segir Egill Snær Þorsteinsson hjá Arion banka.
Kakan er auðvitað bökuð hérna á Akureyri, fyrirtækið heitir Kökur og konfekt. Allir viðskiptavinirnir sem ég hef talað við eru mjög hrifnir af afmæliskökunni, hún hefur hreinlega slegið í gegn. Það er virkilega gaman að bjóða upp á þessar veitingar og allir viðskiptavinir okkar fara ánægðir inn í helgina.