Afmælishátíð KA í dag

Það verður mikið um að vera í KA-heimilinu í dag þegar blásið verður til 85 ára afmælishátíðar félagsins.

Milli klukkan 13 og 15 verður opið hús í KA-heimilinu þar sem boðið verður upp á mjólkurgraut og skúffuköku en á sama tíma verður fyrsta skóflustunga að nýja gervigrasvellinum tekin en völlurinn verður sunnan við KA-heimilið. Auk þess verður styrkjum úthlutað úr Minningarsjóði Jakobs Jakobssonar. Allir félagsmenn, iðkendur og velunnarar félagsins eru hvattir til þess að koma á morgun og fagna merkum áfanga í sögu KA.

Lengi hefur verið beðið eftir fyrsta gervigrasvellinum utanhúss á Akureyri og telja KA menn það sérstakt fagnaðarefni að honum hafi verið fundinn staður á félagssvæði KA

Nýjast