Afmælisganga í Hrísey

Það er margt að skoða í Hrísey. Mynd: Ragnar Hólm
Það er margt að skoða í Hrísey. Mynd: Ragnar Hólm

 Í dag, fimmtudaginn 14. júní kl. 20, verður boðið upp á afmælisgöngu í Hrísey undir yfirskriftinni "Fána og flóra í Hrísey í fortíð og nútíð". Göngufólki gefst tækifæri á að kynnast gróðurfari, jarðsögu og fuglalífi náttúruperlunnar Hríseyjar undir leiðsögn kunnugra. Þorsteinn Þorsteinsson tekur á móti göngugestum á bryggjunni í Hrísey og leiðir gönguna. Ferjan fer frá Árskógsströnd kl. 19.30 og til baka kl. 21.00. Sjálf gangan tekur um klukkustund og er gestum að kostnaðarlausu. Verð i ferju fram og til baka er 1.200 kr. og 600 kr. fyrir börn 12-15 ára og örorku- og ellilífeyrisþega. Það eru afmælisnefnd Akureyrarbæjar og Minjasafnið á Akureyri sem bjóða upp á forvitnilegar gönguferðir öll fimmtudagskvöld í sumar í tilefni stórafmælisins.

Nýjast