Æ fleiri fara í hundana á Akureyri

Hundum heldur enn áfram að fjölga á Akureyri og eru um þessar mundir skráðir 607 hundar í bænum.  Þeim fjölgaði um 94 í allt á liðnu ári eða frá áramótum 2011-12 og þar til um síðustu áramót. Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála og framkvæmdamiðstöðvar segir að því til viðbótar sé töluverður fjöldi hunda  óskráður og brugðist sé við hverju tilviki fyrir sig berist bænum upplýsingar um slíkt.

Hann segir að ágætlega gangi að framfylgja tiltöllulega nýrri samþykkt um hundahald á Akureyri, en til að mynda er lagt bann við því að hundar fylgi eigendum sínum á stærri samkomur í miðbænum, leyfi er einungis gefið fyrir þremur hundum á hverju heimili og þá eru ákveðnar hundategundir bannaðar. „Það gengur ágætlega að framfylgja þessari samþykkt, en vissulega þarf alltaf af og til að hafa afskipti af hundaeigendum. Aðalvandamálið er að margir hirða ekki upp eftir sína hunda og hefur það ágerst mikið sem er mjög hvimleitt,“ segir Jón Birgir.

Nýjast