Eins og greint var frá í Vikudegi var brotist inn í Jörvabyggð á Akureyri um hábjartan dag. Mynd/Karl Eskil.
Borið hefur á innbrotum í íbúðarhús á Akureyri undanfarið og vill lögreglan á Akureyri koma því á framfæri við íbúa að læsa húsum sínum. Þetta eigi ekki bara við að næturlagi þar sem einnig hafa verið innbrot að degi til.
Akureyringurinn Alfreð Gíslason fyrrum leikmaður og þjálfari KA hlaut í gær heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis.
Niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB ættu að vera stjórnvöldum umhugsunarefni, ekki bara vegna málsins sjálfs heldur vegna þess hversu skýr skil urðu milli höfuðborgar og landsbyggðarinnar.
Ingólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga vakti á dögunum athygli á slæmri umgengni í skóginum eftir skemmtanahald. „Vanalega er umgengni um skóginn til fyrirmyndar og við hjá Skógræktarfélaginu reynum að ganga á undan með góðu fordæmi. Ingólfur er Akureyringur vikunnar á facebooksíðu Akureyrarbæjar þar sem hann kemur inn á umgengni og fleiri þætti í starfsemi SE:
Hér má lesa viðtalið við Ingólf
,,Kannski eigum við það líka sameiginlegt að bera ákveðinn beyg í brjósti, jafnvel ótta yfir því hvert verður framhaldslíf þeirra bygginga sem hér standa allt í kringum okkur. Byggingar þessar tilheyra Kristnesspítala og síðustu áratugi hefur hér verið rekin öflug endurhæfingar- og öldrunarlækningadeild á vegum SAk, sú eina sinnar tegundar á landsbyggðinni. Því miður hafa þessar byggingar reynst það illa farnar af langvinnum rakaskemmdum og tilheyrandi myglu að ekki er talið heilsusamlegt að nýta þær lengur undir þessa þjónustu."
Þetta sagði Sólveig Pétursdóttir þjónustustjóri og yfirlæknir Endurhæfingar- og öldrunarlækningaþjónustu SAk í ávarpi sem hún flutti á samkomunni Björgum Kristnesi
Norræna félagið á Norðurlandi býður almenningi á opinn kynningarfund um starfsemi Vestnorræna ráðsins í dag miðvikudag 2. september kl. 17:00 á Amtsbókasafninu á Akureyri.
Það er kominn tími til að stjórnmálamenn hætti að tala um eldri borgara sem einsleitan hóp. Eldri borgarar eru fjölmennur og fjölbreyttur hópur. Sumir hafa góðar tekjur og búa við ágæt kjör. Aðrir þurfa að snúa hverri krónu við og hafa verulegar áhyggjur af því hvernig þeir ná endum saman.