Dagskráin hefst klukkan 14:45, laugardaginn 1. desember, þegar Lúðrasveit Akureyrar leikur undir stjórn Alberto Porro Carmona. Lúðrasveitin er eitt afmælisbörnum ársins en hún fagnar nú 70 ára afmæli sínu.
Leikararnir Einar Aðalsteinsson og Aðalbjörg Árnadóttir frá Leikfélagi Akureyrar taka svo við í hlutverkum sínum úr jólaleikritinu, Ef ég væri jólasveinn, sem Leikfélagið sýnir þessa dagana. Þau kynna dagskrána og syngja með krökkunum.
Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri flytur ávarp og Helgi Jóhannesson konsúll Dana á Akureyri afhendir bæjarbúum jólatré. Það er svo hinn sjö ára gamli Emil Lund Ástvaldsson sem sér um að tendra jólaljósin.