Móttökustaður fyrir drykkjarumbúðir á Akureyri hefur verið fluttur frá Endurvinnslunni við Réttarhvamm, til Plastiðjunnar Bjargs Iðjulundar (PBI), að Furuvöllum 11. Um er að ræða húsnæði í eigu Endurvinnslunar, sem er rétt neðan við húsnæði PBI og er það vel merkt að utan. Þar er eingöngu tekið á móti áldósum, plastflöskum og glerflöskum sem uppfylla reglur um skilagjald. Talsverðar breytingar fylgdu þessum vistaskiptum en drykkjarílátin eru nú flokkuð í tveimur flokkunarvélum hjá PBI.
Svolítið hefur borið á því bæjarbúar að misskilji hlutina en að Furuvöllum 11 er einungis tekið við drykkjarílátum með skilagjaldi, að sögn Ólafar Elfu Leifsdóttur forstöðumanns PBI. Hún segir að fólk sé að koma með alls kyns hluti sem þar eigi ekki heima. Það á ekki að koma hingað með útvörp, sultukrukkur og allslags flöskur og ílát utan af öðru en áfengi, gosdrykkjum og vatni, segir Ólöf.
Hún segir að umbúðir sem búið er að beygla eða kremja þurfi að vera flokkaðar sérstaklega og þá geti fólk lent í því að þurfa að bíða í röð. Það sem er óbeyglað, fari hins vegar óflokkað í sjálfvirkar talningavélar og er sú leið mun fljótvirkari.
Ólöf segir að starfsemin sé komin í fullan gang en þarna eru dósir og flöskur jafnframt pressaðar í sérstökum vélum til flutnings. Á meðan afgreiðslan er opin, eru að 6-7 manns að störfum í einu. Við tökum talningaprufur af því sem kemur frá Austurlandi og af öllu Norðurlandi og göngum frá því. Hér er allt talið í talningavélunum, eða á vog, hvort sem það beyglað eða óbeyglað. Svo fær fólk strimla með strikamerki, sem er skannað inn og greitt beint inn á kort viðkomandi. Við greiðum aðeins með peningum ef upphæðin er undir 2.000 krónum. Það er frekar að ungir krakkar eigi ekki kort og það er hugsunin á bak við það að greiða minni upphæðir út með peningum, segir Ólöf.