Anna Gunndís Guðmundsdóttir er ung og upprennandi leikkona frá Akureyri en hún mun birtast landsmönnum á hvíta tjaldinu um aðra helgi í kvikmyndinni Frost. Þar leikur hún annað aðalhlutverkið á móti Birni Thors en myndin er í leikstjórn Reynis Lyngdal og byggð á handriti Jóns Atla Jónssonar. Töluverð eftirvænting er fyrir myndinni en um er að ræða spennumynd sem tekin var upp við erfiðar íslenskar aðstæður uppi á jökli.
Þetta er fyrsta kvikmyndahlutverk Önnu Gunndísar sem hefur að mestu haldið sig við sviðsleik, þá aðallega hjá Leikfélagi Akureyrar og leikhópnum SIGNA. Vikudagur sló á þráðinn til Önnu og spjallaði við hana um myndina Frost, leikaraferilinn í heild og væntanlega heimkomu til Akureyrar.
Ég er orðin svakalega spennt fyrir að sjá myndina þar sem ég hef ekki ennþá séð hana í heild sinni. Það er líka svo langt síðan að tökum lauk en það var um miðjan síðasta vetur. Þannig að það er óhætt að segja að það sé komin fiðringur í magann, segir Anna. Myndin var að mestu leyti tekin upp á Langjökli og segir Anna að tökur hafi gengið upp og ofan á jöklinum. Við náðum öllu á filmu sem við þurftum að ná en það gekk á ýmsu. Við lentum í ofsaveðri og festumst upp frá í marga klukkutíma þar sem bíllinn bilaði. En þetta var bara skemmtilegt ævintýri og við nýttum tímann til þess að taka upp og náðum frábærum tökum.
Ekki er hægt að fara mikið út í söguþráðinn án þess að skemma fyrir væntanlegum áhorfendum en Anna lofar hins vegar góðri skemmtun. Þeir sem eru fyrir mikla spennu ættu að fá eitthvað fyrir sinn snúð. Það eru bara fagmenn sem koma að þessari mynd og það verður gaman að sjá útkomuna segir hún.
Ítarlegt viðtal við Önnu Gunndísi má finna í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.