60% fylgi viðunandi fyrir Sigmund Davíð

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd Karl Eskil
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson. Mynd Karl Eskil

„Formaður flokksins þarf helst að sigra og það nokkuð afgerandi,“ segir Grétar Þór Eyþórsson stjórnmálafræðingur við Háskólann á Akureyri. Tvöfalt kjördæmisþing Framsóknarflokksins í NA-kjördæmi verður haldið í Mývatnssveit næstkomandi laugardag, þar verður kosið um efstu sætin á framboðslista flokksins.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður flokksins og Höskuldur Þór Þórhallsson þingmaður sækjast báðir eftir fyrsta sætinu. „Sigmundur Davíð þarf helst að fara yfir 60 prósentin og fá tvo þriðju hluta atkvæða. Það yrði viðunandi niðurstaða fyrir hann sem formann.“

Grétar Þór segir jafnframt að staða Sigmundar veikist, tapi hann um helgina fyrir Höskuldi.

„Höskuldur er í sérkennilegri stöðu. Hann þarf að fella formanninn til að ná settu markmiði. Það má orða það þannig að hann hafi bæði allt að vinna og öllu að tapa. Svo má ekki gleyma frægum formannslag þeirra beggja um árið en það eykur spennuna í kringum þetta. En hver sem niðurstaðan verður á kjördæmisþinginu verður alltaf eitthvað fréttnæmt,“ segir Grétar Þór.

throstur@vikudagur.is

Nýjast