Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands voru 450 erlendir ríkisborgarar með lögheimili á Akueyri á fjórða ársfjórðungi nýliðins árs.
Íslenskir ríkisborgarar á Akureyri voru samtals 17.960. Heldur fleiri konur voru skráðar en karlar. Þær voru samkvæmt þessum tölum 9.080, en þeir 8.880.
Á landinu öllu voru skráðir 21.470 erlendir ríkisborgarar á fjórða ársfjórðungi.
karleskil@vikudagur.is