4000 án heimilislæknis á Akureyri

„Ástandið er slæmt í þéttbýliskjörnum á landinu og heldur verra á Akureyri en fyrir sunnan,“ segir Margrét Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri. Um 4000 manns eru án heimilislæknis á svæðinu.

„Þeir sem eru án læknis fá þjónustu en gætu þurft að bíða lengur eftir að komast að. Við erum alltof fá sem erum að sinna þessu svæði,“ segir Margrét.

Ellefu heimilislæknar eru starfandi við HAK en þyrftu að vera fjórtán til að anna eftirspurn að sögn Margrétar.

„Endurnýjun meðal lækna er ekki nægilega mikil og við höfum áhyggjur af því. Það er ekki beint hvetjandi fyrir

ungt fólk að ráða sig inn í störf þar sem vitað er að starfsfólk er að kikna undan álagi.“

Vantar 50 milljónir

Margrét segist binda vonir við niðurstöður fjárlagavinnu fyrir næsta ár, en meira fjármagn vantar til að sinna verkefnum og ráða fleira fólk. „Okkur vantar um 50 milljónir til viðbótar.Verkefnin er okkur ofvaxin eins og er.“

throstur@vikudagur.is

Nýjast