3% af Höfðagöngum þegar grafin
Á hverjum mánudagsmorgni sendir eftirlitsmaður með framkvæmdum í Húsavíkurhöfðagöngum frá sér upplýsingar um hve mikið hafi verið grafið í nýliðinni viku og hvernig verkinu miðar.
Í lok síðustu viku, sem jafnframt var önnur framkvæmdavikan í göngunuum, var lengd ganganna í Höfðanum sem sé orðin 29 metrar, sem samsvarar um um 3% af heildargraftrarlengd ganganna í bergi.
Þegar við kíktum á munnann um þrjúleitið í dag var þar allt með kyrrum kjörum og sprengjumenn auðsjáanlega komnir í páskafrí. JS