Andrésar Andar leikarnir hefjast í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar á fimmtudaginn kemur, Sumardaginn fyrsta, en um er að ræða stærsta skíðamót landsins með allt að 800 keppendum á aldrinum 6-15 ára. Ásamt þjálfurum, farastjórum og fjölskyldumeðlimum er gert ráð fyrir að um 2500 manns sæki Akureyri heim um helgina. Keppt verður í alpagreinum, skíðagöngu og á snjóbretti. Einnig hefur verið keppt í svokölluðum stjörnuflokki um nokkurra ára skeið, en þar keppa fatlaðir eða hreyfihamlaðir íþróttamenn. Aðstæður í Hlíðarfjalli eru með allra besta móti og búast mótshaldarar við góðri þátttöku og miklu fjöri. Keppendur koma frá nítján félögum á Íslandi, en auk þess munu þrír einstaklingar frá Bandaríkjunum keppa í skíðagöngu á leikunum. Keppni hófst í dag og stendur fram á laugardag. Einnig eru veglegar kvöldvökur og verðlaunaafhendingar í lok hvers keppnisdags.