150 ár afmælisrit Akureyrar

Jón Hjaltason með bókina sem fjallar um afmælisbarnið Akureyri.
Jón Hjaltason með bókina sem fjallar um afmælisbarnið Akureyri.

Bókin, Þekktu bæinn þinn, er nú komin í verslanir en um er að ræða afmælisrit Akureyrarkaupstaðar sem fagnar 150 ára afmæli sínu ár. Í stuttum og hnitmiðuðum textum er sagt frá sérkennum afmælisbarnsins, lesandinn er leiddur um götur og hverfi bæjarins og þar sem staðhættir krefjast er kafað í söguna til að útskýra nútímann sem er í brennipunkti. Um 500 ljósmyndir, allar frá þessari öld og margar teknar úr lofti, varpa skemmtilegu ljósi á afmælisbarnið og verða er tímar líða einstæð heimild um Akureyri í byrjun 21. aldar.

Bókin er einkar falleg og veglegt afmælisrit, nokkuð á þriðja hundrað blaðsíður að lengd, í stóru broti og innbundin, allar ljósmyndir eru í lit, og vandað er til prentunar og frágangs í hvívetna, eins og sæmir afmælisbarninu. Ritstjóri og aðalhöfundur er sagnfræðingurinn Jón Hjaltason. Aðrir höfundar eru Hallgrímur Indriðason skógræktarfræðingur, Helgi Laxdal vélstjóri, Lárus Zophoníasson, amtsbókavörður, Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari, Valdimar Gunnarsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri og Þorsteinn Þorsteinsson, starfsmaður íþróttamiðstöðvarinnar í Hrísey. Útgefandi er Völuspá útgáfa í samvinnu við Akureyrarkaupstað.

Saga Lystigarðs Akureyrar

Þá er einnig komin út bókin, Konur gerðu garðinn-Saga Lystigarðs Akureyrar 1912-2012, og er rituð af landslagsarkitektinum, Ástu Camillu Gylfadóttur. Meðhöfundur er Björgvin Steindórsson forstöðumaður Lystigarðsins. Mjög ítarlega er farið í upphafið, hvernig garðurinn varð til og þá miklu sjálfboðavinnu er konurnar lögðu á sig til að gera drauminn um skrúðgarð handa Akureyringum að veruleika.

Í þessari einstaklega fallegu bók er í fyrsta skiptið sögð saga garðsins sem hefur á liðnum áratugum aukið hróður bæjarins og í raun verið eitt helsta aðdráttarafl hans fyrir ferðamenn, sem ekki hafa trúað sínum eigin augum á göngu um garðinn. Ótal ljósmyndir, er prýða bókina, sýna ástæðu vantrúar ferðamannsins. „Þetta er sannkölluð Paradís,” sagði einn þeirra, og fleiri hafa tekið undir.

Nýjast