Alþjóðlega golfmótið Arctic Open hefst í dag að Jaðri á Akureyri en þetta er í 27. sinn sem mótið fer fram. Mótið stendur fram á aðfaranótt sunnudags og verða keppendur um 140, þar af 30 erlendir. Um er að ræða golfmót þar sem kepppt er í opnum flokki með höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Einnig er sérstakur öldunga-og kvennaflokkur. Það sem gerir mótið einstakt er að leikið er á kvöldin og fram á nótt í miðnætursól.