100 milljónir til viðbótar í tækjakaup

Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd/Karl Eskil.
Sjúkrahúsið á Akureyri. Mynd/Karl Eskil.

Samkvæmt fjáraukalögum sem nú eru til meðferðar hjá fjárlaganefnd Alþingis mun Sjúkrahúsið á Akureyri fá 100 milljónir til tækjakaupa á næsta ári, auk þeirra 73 milljóna sem þegar höfðu verið eyrnamerktar sjúkrahúsinu. Sigmundur Ernir Rúnarsson þingmaður Samfylkingarinnar staðfesti þetta við Vikudag í morgun.

„Við viljum koma til móts við brýnan tækjavanda á helstu sjúkrahúsum landsins. Þetta er neyðaróp sem við verðum að sinna. Lífið gengur fyrir og það verður einfaldlega að hagræða á öðrum stöðum,” segir Sigmundur.

Fagna niðurstöðunni

„Við fögnum þessum tíðindum að sjálfsögðu,” sagði Bjarni Jónason, forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri, í samtali við Vikudag í morgun. „Endurnýjun röntgentækja eru í forgangi. Það verða stærstu kaupin. Svo eru mörg önnur smærri tæki sem er brýnt að endurnýja.”

throstur@vikudagur.is

Nýjast