Glatvarmi frá TDK nýtist á ný inn í heitaveitukerfið
„Þetta verður góð viðbót fyrir okkur og veitir ekki af að styrkja kerfið sem mest,“ segir Anton Benjamínsson verkefnastjóri hjá Norðurorku og vísar til þess að verkefni sem snýst um að nýta glatvarma frá álþynnuverksmiðju TDK til upphitunar á bakrásarvatni úr kerfum Norðurorku. Gert er ráð fyrir að skili um 10m MW inn í hitaveitukerfi Norðurorku.
Framkvæmdir við lagnir hefjast á næstu dögum, en þær liggjafrá gatnamótum Hörgárbrautar og Hlíðarbrautar á Akureyri þar sem heitt vatn kemur inn til Akureyrar og í verksmiðju TDK, önnur að verksmiðjunni og hin frá henni. Skrifað var undir viljayfirlýsingu fyrir rúmu ári á milli Norðurorku og TDK um að kanna fýsileika þessa verkefnis. Unnið hefur verið að frumhönnun, kostnaðaráætlun og tímalínu verkefnisins auk áfangaskiptingar