Aldís Ásta Heimisdóttir til liðs við Skara HK í Svíþjóð
Aldís Ásta Heimisdóttir skrifaði í dag undir tveggja ára samning við sænska efstu deildarliðið Skara HF sem er i 150 km fjarlægð fra Gautaborg. Aldís sem er uppalin hjá KA/Þór er algjör lykilmaður í liðinu hvort sem er í sókn eða vörn. Þá lék hún sína fyrstu A-landsleiki fyrir Íslands hönd í vetur og gerði sín fyrstu landsliðsmörk í leik gegn Sviss. Aldís Ásta varð í öðru sæti á landinu yfir bestu leikmenn OLIS deildar kvenna í vetur samkvæmt skráningu HB Statz sem heldur utan um tölfræði i handboltanum. Liðsfélagi hennar í KA/Þór, Rut Jónsdóttir varð i efsta sæti en það er öllur ella.