Hefur þú skoðun?
Hefur þú skoðun á breyttu aðalskipulagi fyrir svæðið í kringum Glerártorg og fyrirhugaðri skipulagningu íbúðalóða syðst í Naustahverfi (Naust III)?
Kíktu á tillögurnar og ræddu málin við starfsfólk skipulagsdeildar Akureyrarbæjar.
Hefur þú skoðun á breyttu aðalskipulagi fyrir svæðið í kringum Glerártorg og fyrirhugaðri skipulagningu íbúðalóða syðst í Naustahverfi (Naust III)?
Kíktu á tillögurnar og ræddu málin við starfsfólk skipulagsdeildar Akureyrarbæjar.
Rúmlega 400 íbúðir eru í byggingu á Akureyri um þessar mundir. Búið er að úthluta lóðum þar sem byggja má rúmlega 170 íbúðir. Þetta kemur fram í minnisblaði um uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á Akureyri og hver staða mála var í ágúst 2024.
20,383 íbúar voru skráðir með lögheimili á Akureyri um síðustu mánaðamót, samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Miðað við 1. desember á síðasta ári hefur íbúum bæjarins fjölgað um 183, sem er 0,9 prósenta fjölgun en landsmeðaltalið á þessu tímabili er 1,7 prósent.
Sex hafa gegnt starfi skólameistara VMA í þau fjörutíu ár sem skólinn hefur starfað. Öll mættu þau í móttöku sem efnt var til fyrir fyrrverandi og núverandi starfsmenn VMA.
Trjágróður er yfirleitt til mikillar prýði og ánægju fyrir okkur öll en ef hann vex út fyrir lóðarmörk þá geta hlotist af því óþægindi og jafnvel hætta fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur, auk þess sem það getur valdið tjóni á tækjum og bifreiðum.
Haldið verður upp á 40 ára afmæli Síðuskóla í dag 5. september kl. 16 í íþróttahúsi skólans. Að lokinni formlegri dagskrá verður farið í skrúðgöngu um hverfið og loks boðið upp á veitingar í matsal skólans. Allir eru velkomnir.
Tveir kennarar sem hófu störf við Verkmenntaskólann á Akureyri þegar starfsemi hans hófst haustið 1984 eru enn að störfum, kennararnir Erna Hildur Gunnarsdóttir og Hálfdán Örnólfsson. Verkmenntaskólinn varð til við samruna þriggja skóla, þ.e. framhaldsdeilda Gagnfræðaskólans á Akureyri, Iðnskólans á Akureyri og Hússtjórnarskólans á Akureyri
Hugmynd að stórhýsi á baklóð við Glerárgötu 36 á Akureyri var kynnt fyrir skipulagsráði Akureyrarbæjar nýverið. Það gerði fulltrúi frá Fjárfestingafélaginu Klöppum sem er í eigu KEA, en annað dótturfélag, Skálabrún sem hefur verkefni og fjárfestingar á þessu sviði á sínu borði myndi sjá um málið.
Næstu skref í málinu að lokinni kynningu er að fá fram afstöðu skipulagsráðs.
HönnunarÞing er hátíð hönnunar og nýsköpunar sem haldin verður á Húsavík 3.-5. október nk. en þetta er í annað hátíðin er haldin á Húsavík. Áherslan í ár er tónlist og margvíslegar birtingarmyndir snertiflata hönnunar og tónlistar.
Verkefni við smíði nýrrar brúar fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur yfir Glerá, Skarðshlíð-Glerártorg verður boðið út að nýju í vetur. Eins og Vikublaðið sagði frá á dögunum var verkið var boðið út í sumar en engin tilboð bárust þá.
Hörgársveit hefur óskað eftir formlegum viðræðum við Norðurorku um hvort veitan geti tekið að sér rekstur og framkvæmdir vatnsveit á Hjalteyri. Stjórn Norðurorku hefur samþykkt að hefja formlegar viðræður við Hörgársveit um málið.
Afkoma Norðurorku eftir fyrstu 6 mánuði ársins er betri en áætlun gerði ráð fyrir. Uppgjör fyrir fyrri helming ársins var lagt fram á stjórnarfundi nýverið, fyrir Norðurorku og samstæðuna, þ.e. með rekstri Fallorku.
Kristrún Erla Sigurðardóttir sérfræðingur í heimilislækningum og Valgerður Þorsteinsdóttir sérfræðingur í öldrunarlækningum hafa verið ráðnar til starfa innan öldrunarlækningateymis SAk á Kristnesspítala.
Ölföng er heiti á netverslun með áfengi og nikótínvörur, sem tók til starfa á Akureyri nýverið. Verslunin býður viðskiptavinum upp á að sækja eða fá heimsent. Verslun félagsins er við Laufásgötu 9 á Akureyri og er opið frá kl. 15 til miðnættis alla daga.
Berlín 9. nóvember 1989
Eftir menntaskóla bjó ég einn vetur í München. Hugðist nú heldur betur læra þýskuna og tala eins og innfædd. Markmiðið var metnaðarfullt en árangurinn ekki í takt við það. Reyndar heldur faðir minn að ég sé þýsku sjéni því á ferðalögum okkar á ég það til að panta veitingar á þýsku. Við skulum ekki leiðrétta það.
„Ég hef verið miður mín yfir þessu stríði á Gaza frá upphafi, en það að ég fór að stunda hjálparstarf að heiman og styðja við fólk í neyð þar má rekja til þess að ég sá hjálparbeiðni á Facebook sem vakti athygli mína,“ segir Kristín S. Bjarnadóttir hjúkrunarfræðingur sem hefur lagt hönd á plóg og veitt aðstoð sína heiman frá sér, við þá sem eiga um sárt að binda í stríðinu á Gaza.
Á mælum Umhverfisstofnunar má sjá að mikil loftmengun er á Akureyri og Húsavík þessa stundina, niðurstöður mælinga eru táknaðar með eldrauðum lit.
„Við tökum eitt skref í einu og að einn góðan veðurdag náum við að ljúka því,“ segir Alfreð Garðsson formaður Sóknarnefndar í Grímsey. Vinnu við uppbyggingu nýrrar Miðgarðakirkju hefur miðað vel áleiðis. Kirkjan brann til kaldra kola í september fyrir þremur árum.
Haustdagar grunnskólanna voru haldnir 13. og 14. ágúst í Háskólanum á Akureyri, þar kom saman starfsfólk og stjórnendur úr 16 grunnskólum á svæðinu. Haustdagarnir hafa aldrei verið fjölmennari en um 300 kennarar, stjórnendur og starfsfólk grunnskóla tóku þátt.
„Það hefur verið mjög blautt undanfarna daga og vikur, mun meiri rigningar ern við eigum að venjast og það hefur gert bændum lífið leitt,“ segir Sigurgeir Hreinsson framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Eyjafjarðar. Bændur eru víða í öðru slætti sumarsins, sem er nokkuð óvenjulegt miðað við mörg undafarin ár en þekktist áður fyrr. „Þessi bleytutíð hefur sannarlega sett strik í reikninginn,“ segir hann.
Fjörutíu ára afmælishátíðin í Gryfjunni í gær var sérlega ánægjuleg í alla staði. Fjölmargir sóttu skólann heim af þessu tilefni, nemendur núverandi og fyrrverandi, starfsmenn núverandi og fyrrverandi og fjölmargir aðrir góðir gestir. Að loknum ræðuhöldum var boðið upp á glæsilega afmælistertu – reyndar voru þær fimm – og fólk naut stundarinnar og rifjaði upp eitt og annað frá liðinni tíð.
Yfirþjónar Akureyrar, þau Halla og Finnur sem stýrðu glæstustu veislum bæjarins á síðustu öld, Sjallinn, Bautinn, Kea osfrv, þjónuðu til borðs í dag. Þau hafa engu gleymt, köflóttir dúkar á öllum borðum og fagmennskan í fyrirrúmi
Aðalfundur Kaldbaks ehf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 29 ágúst. Á fundinum var ársreikningur félagsins fyrir árið 2023 lagður fram og staðfestur af hluthöfum. Um er að ræða fyrsta heila starfsár félagsins sem sjálfstætt fjárfestingarfélag en áður var það hluti af samstæðu Samherja.
Hagnaður samstæðu félagsins á síðasta ári nam 9,5 milljörðum króna. Eigið fé samstæðu Kaldbaks í árslok 2023 nam 35,5 milljörðum króna.
,,Þar sem þetta er nú einu sinni 25 ára ártíð XXX Rottweiler ber að fagna grimmt og gríðarlega. Við hófum leikinn með því að stappa Laugardalshöllina í maí og endurtökum fíneríið með því að færa höfuðborg Norðurlands það sem allir voru sammála um að hafi verið sturluðustu tónleikar í manna minnum“ segir Erpur Eyvindarsson eða BlazRoca eftir atvikum. En annað kvöld verða stórtónleikar í Íþróttahöllinni á Akureyri með XXX Rottweiler og gestum þeirra og verður þar engu til sparað við að skapa alvöru viðburð.
Á vef Austurfréttar er að finna ítarlega frétt um sölu eigenda Búsældar til KS. Vefurinn fékk samþykki Gunnars Gunnarssonar ritstj. Austurfréttar fyrir því að birta úrdrátt úr áðurnefndri frétt hér á vefnum.
Um þessar mundir fagnar Verkmenntaskólinn á Akureyri 40 ára afmæli sínu og af því tilefni verður í dag, fimmtudaginn 29. ágúst, efnt til opins húss og afmælishófs í skólanum þar sem öllum er boðið að koma og njóta þess sem verður boðið upp á og um leið að kynna sér starfsemi skólans.
Um þessar mundir er sá tími ársins þar sem skólarnir okkar fyllast aftur af börnum eftir hið langa, íslenska sumarfrí. Þetta er að mörgu leyti yndislegur tími, samfélagsmiðlar fyllast af myndum af misstórum brosandi börnum sem eru öll að hefja nýjan áfanga í sínu lífi, hvort sem það er að hefja nám í grunnskóla eða framhaldsskóla, flytjast upp um bekk eða jafnvel setjast á háskólabekk. Foreldrar og forráðamenn allir að rifna úr stolti, réttilega því börnin okkar eru jú eitt það allra dýrmætasta sem við eigum.