Zontaklúbburinn styrkir Aflið

Formaður Zontaklúbbsins, Fjóla Björk Jónsdóttir, formaður Aflsins, Anna María Hjálmarsdóttir og Guðr…
Formaður Zontaklúbbsins, Fjóla Björk Jónsdóttir, formaður Aflsins, Anna María Hjálmarsdóttir og Guðrún Rósa Þorsteinsdóttir.

Zontaklúbbur Akureyrar færði Aflinu, samtökum gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri, peningagjöf í byrjun júlí. Aflið eru samtök sem voru stofnuð á Akureyri árið 2002 og veita ráðgjöf og stuðning öllum þeim sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og/eða heimilisofbeldi og aðstandendum þeirra s.s. mökum, foreldrum, systkinum og vinum. Zontaklúbbur Akureyrar hefur í gegnum árin stutt samtökin og þeirra góða og mikilvæga starf.

Á síðasta ári gengu fjáröflunarverkefni klúbbsins mjög vel sem gerir honum kleyft að styðja vel við Aflið í ár, segir í fréttatilkynningu. Zontaklúbbur Akureyrar er félagsskapur sem starfar samkvæmt alþjóðlegum reglum Zontahreyfingarinnar og beitir sér sérstaklega fyrir því að styrkja stöðu kvenna á heimsvísu.

Nýjast