„Það hefur gengið mjög vel hjá okkur og samkvæmt þeim væntingum sem við höfðum,“ segir Jón Heiðar Rúnarsson sem ásamt Anitu Hafdísi Björnsdóttur rekur félagið Zipline Akureyri. Þau hófu starfsemi um mitt sumar árið 2022 og eru því á sínu fjórða sumri. Zipline Akureyri rekur ævintýra ferðaþjónustu í Glerárgili, er með alls fimm sviflínur þar sem farið er yfir Glerá.
Jón Heiðar segir að þægilegur stígandi hafi verið í starfseminni. „Við höfum smám saman komist á kortið og æ fleiri vita af okkar tilvist. Það tekur alltaf tíma að koma sér fyrir á markaði en mér finnst við á góðum stað nú, starfsemin vex jafnt og þétt á milli ára,“ segir hann.
Farþegar skemmtiferðaskipa meðal áhugasamra
Heimamenn hafa tekið Zipline Akureyri vel, sem og íslenskir ferðalangar og hið smá má segja um erlenda ferðamenn. „Við fáum til okkar breiðan hóp, talsvert af heimamönnum, sem dæmi hafa fyrirtæki talsvert verið að koma eða aðrir hópar og einnig er mjög mikið um það á vorin að skólahópar héðan og þaðan af landinu nýti sér þessa afþreyingu. Þetta er spennandi og vinsælt hjá slíkum hópum. Þá er líka mikið um erlenda ferðamenn, við fáum alltaf talsvert af fólki til okkar af skemmtiferðaskipunum sem hingað koma og þeir eru hæst ánægðir,“ segir Jón Heiðar en ferðalag frá bryggjunni og upp að bækistöð Zipline Akureyri. vefst ekki fyrir farþegum. „Það eru ýmsar leiðir færar til að komast til okkur, sumir ganga, aðrir taka hopphjól, leigubíl eða strætó. Þeir sem virkilega vilja prófa láta ekkert stoppa sig.“
Alls eru í boði fjórar fastar ferðir á dag, en fleiri bætt við ef eftirspurn er meiri.
Elsti þátttakandinn 96 ára
Alls eru í boði fjórar fastar ferðir á dag, sú fyrsta kl. 10 og síðasta kl. 16. Misjafnt er hversu margir eru í hverri ferð en gjarnan eru þeir 12, en fleiri ef hópar eru stærri og fólk þekkist. Sviflínurnar eru fimm talsins og er ein þeirra 260 metra löng.
„Aldursbilið er breitt, þeir yngstu 8 ára gamlir og við höfum fengið einn 94urra ára og sá elsti var 96 ára, aldurinn er enginn fyrirstaða ef fólk hefur heilsu til að ganga á milli sviflínanna þá geta allir notið þess að svifa hér um Glerárgilið,“ segir Jón Heiðar.
Náttúruupplifun
Auk þess að ferðin sjálf yfir ánna gefur fólki mikið þykir mörgum ekki síður varið í að ganga um gilið og njóta einstakrar náttúrufegurðar. „Þetta er mikil upplifun, að vera hér inni í miðjum bæ í óspilltri náttúruparadís. Það er mikil veðursæld í gilinu, nánast alltaf logn og á milli sviflína eru góðir göngustígar,“ bætir hann við, en við alla hönnun svæðisins, gerð göngustíga og smíði t.d. palla og bekkja var lögð áhersla á að hrófla sem minnst við náttúrunni á staðnum, heldur vinna með henni og í kringum hana. „Það er mat okkar gesta að vel hafi tekist til.“
Suma daga er mikil ásókn í ferðir og þá segir Jón Heiðar að hægur vandi sér að bæta við ferðum. „Við höfum tíma inn á milli og eftir síðustu föstu ferð, einnig höfum við á að skipa góðum mannskap, leiðsögumönnum sem kunna sitt fag og hafa fengið mikil lof þeirra sem hafa prófað. Þegar mest er höfum við farið þetta átta til níu ferðir yfir daginn,“ segir hann.
Jón Heiðar kveðst ánægður með framvinduna og hversu vel hafi tekist til. „Þegar við byrjuðum var ekki mikið um afþeyingu fyrir ferðafólk inni í bænum, fólk þurfi að leita út fyrir bæinn t.d. flúðasiglingar eða annað svipað. Nú erum við búin að koma okkur vel fyrir, fólk veit af okkur og það gengur vel.“
Eigendur og starfsfólk á góðum degi.