Norðurþing hefur tilkynnt listamann sveitarfélagsins árið 2025 en það er Ingunn St. Svavarsdóttir - betur þekkt undir listamannsnafninu YST.
Ingunn er fædd árið 1951 á Egilsstöðum og ein af fyrstu íbúum bæjarins. Hún lærði sálfræði á Íslandi og í Gautaborg í Svíþjóð, með sérhæfingu í barna- og fjölskylduráðgjöf. Hún starfaði á því sviði í áratug, fyrst hjá Dagvist barna í Reykjavík, þar sem hún sinnti yfir 30 leikskólum, og síðar sem fyrsti heilsugæslusálfræðingur landsins í Norður-Þingeyjarsýslu.
Ingunn sinnti einnig stjórnmálum og var sveitarstjóri í 12 ár – fyrst í Presthólahreppi og síðar eftir sameiningu í Öxarfjarðarhreppi. Þar átti hún m.a. þátt í stofnun Fjallalambs á Kópaskeri og hitaveitu í Öxarfirði – mikilvægum framfaraskrefum fyrir svæðið.
Árið 1999 tók Ingunn nýja stefnu í lífinu og hóf nám í myndlist við Myndlistarskólann á Akureyri, en síðar mastersnám við Newcastle-háskóla á Englandi. Á sama tíma breyttu hún og eiginmaður hennar, Sigurður Halldórsson, gömlum bragga í Öxarfirði í sýningar- og vinnurými listafólks: Bragginn Yst.
Síðan 2004 hefur Ingunn haldið árlegar sýningar í Bragganum Yst, gjarnan í tengslum við Sólstöðuhátíðina á Kópaskeri. Hún hefur einnig tekið þátt í yfir 70 listsýningum, bæði einkasýningum og samsýningum, víða um land og erlendis.
YST vinnur með fjölbreytta miðla: hún hefur málað, teiknað, tekið þátt í gjörningum og skapað inni- og útiskúlptúra bæði úr málmum og tré.
List hennar sameinar innsýn í sálarlífið, tengsl við náttúruna og sterk félagsleg og femínísk sjónarhorn. Verkin fjalla meðal annars um breytileika manneskjunnar, fegurð, breyskleika og von.
Sýningin í sumar í Bragganum Yst ber heitið Viðrun vonanna
Þar dregur hún fram mikilvægi vonarinnar – sem veitir fólki innri styrk, dregur úr kvíða og streitu, og ýtir undir jákvæðni og þróun – bæði hjá einstaklingum og í samfélaginu.
Nánari upplýsingar og sýnishorn af verkum Ingunnar má finna á heimasíðu hennar: www.yst.is