Yfirvofandi gjaldþrot Norðurstrandar á Dalvík

Rúmlega 30 manns missa vinnuna hjá fiskvinnslunni Norðurströnd ehf. á Dalvík vegna yfirvofandi gjaldþrots fyrirtækisins. Gjaldþrotabeiðni Íslandsbanka verður væntanlega tekin fyrir á fimmtudag í Héraðsdómi Norðurlands eystra, að sögn Guðmundar St. Jónssonar, framkvæmdastjóra Norðurstrandar.Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag.

Í umfjöllun um mál þetta  segir Guðmundur að unnið hefði verið að fjárhagslegri endurskipulagningu rekstursins í allt að þrjá mánuði en þessi hefði orðið niðurstaðan. Vinnsla hefur legið niðri á meðan.

Starfsfólki Norðurstrandar á Dalvík var greint frá því á fundi á föstudaginn var að félagið færi líklega í gjaldþrot. Þar voru viðstaddir fulltrúar verkalýðsfélagsins Einingar-Iðju og Vinnumálastofnunar. Guðmundur sagði að starfsfólkið myndi fara á atvinnuleysisbætur þar til það fengi greitt úr ábyrgðarsjóði launa.

„Það hefur alvarleg áhrif þegar fyrirtæki af þessari stærðargráðu hættir starfsemi,“ sagði Svanfríður Inga Jónasdóttir, bæjarstjóri Dalvíkurbyggðar í samtali við Morgunblaðið. Hún sagði áhrifin vera tvöföld. Annars vegar að fólk yrði mögulega atvinnulaust og hins vegar þau slæmu áhrif sem þetta kynni að hafa á líðan almennings í sveitarfélaginu.

Nýjast