We – Við – Meie

Hópurinn í Eistlandi í fyrra.  Mynd á vefsíðu Þingeyjarsveitar
Hópurinn í Eistlandi í fyrra. Mynd á vefsíðu Þingeyjarsveitar

Nemendur og starfsfólk Stórutjarnaskóla fengu nýverið styrk úr Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins til að vinna að alþjóðlegu ungmennaverkefni sem ber nafnið „We – Við – Meie“. Verkefnið er leitt af Sigríði Árdal og Mariku Alavere í samstarfi við nemendur í 8.–10. bekk, og í september mun hópurinn taka á móti tíu ungmennum og kennurum þeirra frá Eistlandi.

Meginhluti verkefnavinnunnar fer fram í Stórutjarnaskóla, en einnig er fjölbreytt dagskrá fyrirhuguð þar sem þátttakendur munu meðal annars fara í vettvangsferðir um sveitarfélagið og kynnast náttúru og menningu Þingeyjarsveitar. Markmið verkefnisins eru meðal annars að efla sjálfstraust og leiðtogahæfni ungmenna, vekja þau til umhugsunar um sjálfbæran lífsstíl og framtíð jarðar og stuðla að alþjóðlegri samvinnu og vináttu.

Nýjast