Vortónleikar Karlakórs Akureyrar-Geysis í dag

Á vortónleikum Karlakórs Akureyrar-Geysis, sem haldnir verða í Menningarhúsinu Hofi í dag, einblína kórfélagar á tímabilið 1930 - 1950. Horft verður jafnt til innlendra og erlendra tónskálda og víst er að söngdagskráin verður fjölbreytt.

 Einsöngvarar KAG fá sérstaklega að njóta sín á þessum vortónleikum og undirstrikar framlag þeirra breiddina í starfi kórsins.

 Létt og skemmtileg „Barber Shop“ tónlist hljómaði gjarnan á þessum tíma og hluti af söngdagskrá tónleikanna ber keim af því.

Norrænir vísnasöngvar frá þessum tíma munu einnig hljóma.

Rammíslensk tónlist færa að vanda sinn sess hjá KAG og Jón Leifs er kórfélögum sérlega hugleikinn á þessu vori. Hin átakamiklu og kröftugu Rímnadanslög tónskáldsins eru á meðal þess sem flutt verður á tónleikunum. Íslensk rímnadanslög, ópus 11, eru safn rímnastefja sem Jón Leifs ýmist skráði eftir íslenskum kvæðamönnum eða samdi sjálfur. Kórútgáfa verksins er sjaldan flutt í heild sinni, en hún er í fjórum köflum; Hestavísur nr.1, Fuglavísur nr.2, Siglingavísur nr. 3 og Dýravísur nr. 4.

 Starf Karlakórs Akureyrar-Geysis er hluti af merkri tónlistarsögu Akureyrar. Það birtist vel á 90 ára afmælistónleikum kórins í Hofi í nóvember síðastliðnum. Á vortónleikunum horfa KAG-félagar áfram til sögunnar, en fyrst og fremst fá tónleikagestir að njóta karlakórstónlistar eins og hún gerist best, segir í tilkynningu frá kórnum.

Nýjast