Vorsýning

Hin árlega Vorsýning Myndlistaskólans á Akureyri verður opnuð laugardaginn 18. maí í húsnæði skólans Kaupvangsstræti 16. Sýnd verða verk nemenda fornámsdeildar, listhönnunar- og fagurlistadeildar. Þar gefur að líta sýnishorn af því helsta sem nemendur í frjálsri myndlist og grafískri hönnun hafa verið að fást við á þessu skólaári. Auk þess verða á sýningunni verk eftir nemendur á barna- og unglinganámskeiðumá vorönn. Alls stunduðu fimmtíu og átta nemendur nám í dagdeildum skólans og af þeim munu tuttugu og sex brautskrást frá skólanum að þessu sinni. 

Allir eru hjartanlega velkomnir í Myndlistaskólann á Akureyri sýningardagana. Opnunartími kl. 13 til 17 og lýkur sýningunni mánudaginn 20. maí.

 

Nýjast