Vorráðstefna um upplýsingatækni

Stefán Hrafn Hagalín
Stefán Hrafn Hagalín
Hin árlega Vorráðstefna Advania á Akureyri verður haldin föstudaginn 12. apríl. Dagskráin í ár er fjölbreytt, en alls verða haldnir sextán fyrirlestrar þar sem áherslan verður lögð á framtíðarsýn og fróðleik um nýjustu strauma og stefnur í upplýsingatækni.
 
Vorráðstefnan verður haldin í menningarhúsinu Hofi og mun dagskrá standa yfir frá klukkan 13:00 til 17:30 þegar hlaðið verður í fjörlegt lokapartý með léttum veitingum á föstu og fljótandi formi. Áætluð dagskrárlok eru um 19:30. Ráðstefnan er opin öllu áhugasömu fólki í atvinnulífinu meðan húsrúm leyfir. Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu.
 
SNILLINGAR Á NORÐURLANDI
"Ég sé á dagskránni að það er ákveðinn landsbyggðarbragur á þessu hjá okkur. Meðal fyrirlesara eru þannig Skagfirðingurinn Ragnar Már Magnússon sem fjallar um viðskiptagreind, Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku, Hólmar Svansson ráðgjafi hjá Capacent og Inga Á. Karlsdóttir útibússtjóri hjá Landsbankanum á Akureyri, ásamt Innbæingnum Tryggva R. Jónssyni og Brekkusniglinum Sigvalda Óskari Jónssyni. Þannig að við græjum sem sagt helminginn af ráðstefnunni með snillingum héðan af Norðurlandi, enda væri annað ótækt. Í framhjáhlaupi er rétt að geta þess að Advania-forstjórinn Gestur G. Gestsson opnar ráðstefnuna, en hann er frá Hafnarfirði sem er vitaskuld hálfgert sveitaþorp," segir Stefán Hrafn Hagalín, sem er forstöðumaður samskiptasviðs hjá Advania og sjálfur uppalinn á Akureyri, en hann verður fundarstjóri á ráðstefnunni.
 
TILHLÖKKUNAREFNI
Að sögn Stefáns Hrafns er Vorráðstefna Advania á Akureyri alltaf mikið tilhlökkunarefni hjá fyrirtækinu, en þá nota margir Norðlendingar hjá höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík tækifærið og skella sér norður yfir heiðar til að hitta viðskiptavini. Þess má geta að Advania er einn stærsti atvinnurekandinn á Akureyri með 40 manna starfsstöð við Tryggvabraut, en jafnframt starfa um 10 manns hjá Advania á Sauðárkróki. Advania veitir fjölbreytta þjónustu á Norðurlandi, hvort heldur á sviði vélbúnaðar eða hugbúnaðarlausna fyrir stóra sem smáa.
 
„Við gerum ráð fyrir um 200 gestum á föstudaginn, sem væntanlega þýðir að þetta verður einn stærsti viðburður sem haldinn hefur verið um upplýsingatækni utan höfuðborgarsvæðisins. Við erum að sjálfsögðu frekar stolt af þeirri staðreynd,“ segir Stefán Hrafn að lokum.

Nýjast