Lögreglan á Akureyri vonar að síðasta nótt Bíladaga verði stórtíðindalaus.
Vonandi fara þeir sem síðustu nætur hafa gert allt sem þeir geta til að halda vöku fyrir bæjarbúum og fá þá með því upp á móti þessari hátið að sjá að sér og aka eins og siðaðir menn. Annars verða allir þeirri stundu fegnastir þegar þeir halda á brott og vona að þeir komi aldrei aftur, segir á Facebook lögreglunnar.
Meðfylgjandi mynd tók Hörður Geirsson.