Völlurinn yrði enn betri og öruggari

Akureyrarflugvöllur.
Akureyrarflugvöllur.

„Málið er á byrjunarstigi og hefur einungis verið kynnt sem möguleiki,“ segir Sigurður Hermannsson umdæmisstjóri Isavia á Akureyrarflugvelli, en til skoðunar hefur verið hvort fýsilegt sé að setja upp samskonar aðflugsbúnað við norðurenda flugbrautarinnar og fyrir er við suðurendann. Sigurður segir að búnaður af því tagi kosti töluvert fé, og enn sé málið ekki komið á það stig að nein ákvörðun hafi verið tekið um hvort ráðist yrði í þau. 

Sigurður segir að í öllum nýrri flugvélum sé til staðar GPS-búnaður sem gerir þeim kleift að koma inn til lendingar við verri veðurskilyrði en vélum sem ekki hafa slíkan búnað. Unnur Sigurðardóttir flugumferðarstjóri segir að það myndi breyta miklu ef til staðar væri aðflugsbúnaður við norðurenda flugbrautarinnar á Akureyrarflugvelli.

„Það yrði mikill ávinningur fyrir völlinn ef þessum búnaði yrði bætt við, staða hans yrði enn betri en nú,” segir Unnur.

Nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Vikudags sem kom út í gær.

Nýjast