Vodafone hefur samið við rekstraraðila Glerártorgs á Akureyri um leigu á nýju húsnæði og er stefnt að því að opna nýja og mun stærri verslun á Akureyri um miðjan júní. Fjórtán ár eru síðan verslunarmiðstöðin á Glerártorgi var opnuð og hefur Vodafone verið með verslun þar um langt skeið. Verslunin hefur hins vegar sprengt utan af sér rýmið og því hefur verið samið við Eik fasteignafélag um að auka verslunarrýmið, segir í tilkynningu.
Nýja húsnæðið á Glerártorgi verður betra sýningarrými, mun rýmra er um viðskiptavini okkar og starfsfólk og síðast en ekki síst mun Vodafone geta hleypt auknum krafti í almenna þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á Akureyri og nágrenni, segir Björn Víglundsson, framkvæmdastjóri sölusviðs Vodafone.