Lögreglan á Akureyri lýsir eftir vitnum að árekstri sem varð á gatnamótum Þórunnarstrætis og Glerárgötu fimmtudagskvöldið 15. nóvember 2012 kl. 20:00. Þeir sem einhverjar upplýsingar geta veitt um áreksturinn eru beðnir að hafa samband við lögregluna á Akureyri síma 464-7700. Þarna lentu jeppi og fólksbifreið í umferðaróhappi.