Vísar gagnrýni á bug

Oddur Helgi Halldórsson.
Oddur Helgi Halldórsson.

„Ég get alveg tekið undir það að tímaramminn vegna framkvæmdanna er stuttur. Það hefði verið betra að byrja fyrr ef þess hefði verið kostur en ég vísa því alfarið á bug að við séum að taka óþarfa áhættu,“ segir Oddur Helgi Halldórsson bæjarfulltrúi hjá L-lista á Akureyri. Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi L-listann harðlega í Vikudegi í síðustu viku fyrir stuttan framkvæmdartíma við gervigrasvöll á KA-svæðinu.

Framkvæmdir hófust í byrjun janúar og áætlað að verkefnið taki fjóra og hálfan mánuð. Njáll Trausti segir L-listann ekki hafa haldið nógu vel um verkefnið og veruleg hætta sé á að framkvæmdir fari kostnaðarlega fram úr áætlun með seinni tíma lagfæringum, en því er Oddur ósammála.

throstur@vikudagur.is

Nánar um málið í prentútgáfu Vikudags sem kemur út í dag.

Nýjast