Vinstri græn í Norðausturkjördæmi boða til opinna stjórnmálafunda í Eyjafirði og á Húsavík á næstu dögum.
Á fundina mæta alþingismennirnir Steingrímur J. Sigfússon og Björn Valur Gíslason og frambjóðendurnir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Edward Huijbens. Þau munu ræða stöðuna í stjórnmálunum, fara yfir helstu áherslur Vinstri grænna í komandi alþingiskosningum og svara fyrirspurnum.
5. febrúar Við höfnina á Dalvík kl. 20:00
6. febrúar Gamli Baukur á Húsavík kl. 12:00 (súpufundur)
6. febrúar Hótel KEA á Akureyri kl. 20:30
7. febrúar Allinn á Siglufirði kl. 12:00 (súpufundur)
7. febrúar Höllin í Ólafsfirði kl. 20:00