Vinnustofur listamanna opnar gestum

Vinnustofur listamanna á fimm stöðum í miðbæ Akureyrar verða opnar gestum og gangandi fimmtudaginn 7. mars frá kl. 16-20. Þetta var fyrst reynt fyrir um mánuði síðan og mæltist svo vel fyrir að nú er stefnt að því að gera þetta að mánaðarlegum viðburði. Vinnustofurnar sem opnar verða eru þessar:

Kaupvangsstræti 12
(Listasafnshúsið / gengið inn úr portinu fyrir ofan, baka til):

G. Rúnar Guðnason myndlistarmaður
Hallgrímur Ingólfsson myndlistarmaður
Ólafur Sveinsson myndlistarmaður
Freyja Reynisdóttir myndlistarnemi
Gunnhildur Helgadóttir myndlistarnemi
Karólína Baldvinsdóttir myndlistarnemi

Flóra, Hafnarstræti 90:

Sigurjón Már og Marta Kusinska áhugaljósmyndarar
Kristín Þóra Kjartansdóttir félagsfræðingur og framkvæmdastýra Flóru
Hlynur Hallsson myndlistarmaður
Elín Hulda - recycled by elinhulda
Auður Helena - Kaí merking
Inga Björk - gullsmíði og myndlist

Ráðhústorg 7:

Fótografía, Guðrún Hrönn ljósmyndari
María Ósk listamaður
Blek hönnunarstofa
Herdís Björk vinnustofa | Bimbi

Mublur Húsgagnaviðgerðir, Brekkugötu 13:

Berglind Júdith Jónasdóttir húsa- og húsgagnasmiður
Guðrún Björg Eyjólfsdóttir húsgagnasmíðanemi
Ingibjörg Björnsdóttir húsgagnasmíðanemi

Hvítspói, Brekkugötu 3a:

Anna Gunnarsdóttir textilhönnun og myndlist

Allir eru velkomnir og fólk getur gengið á milli og kíkt í heimsókn á vinnustofur og skoðað það sem verið er að framleiða og bjóða upp á í miðbænum.

Nýjast