Vill íþróttafræði norður

Ellert Örn Erlingsson. Mynd/Þröstur Ernir.
Ellert Örn Erlingsson. Mynd/Þröstur Ernir.

Ellert Örn Erlingsson flutti frá Svíþjóð fyrir um ári. Hann hefur komið sér vel fyrir á Akureyri ásamt fjölskyldu sinni og tók við starfi forstöðumanns íþróttamála. Ellert segir að sér líki lífið vel fyrir norðan, starfið sé spennandi og fjölskyldan hafi strax fallið fyrir bænum og fólkinu sem hér býr. Ellert er Reykvíkingur en lærði íþróttafræði á Laugarvatni og stundaði meistaranám í Lundi í Svíþjóð. Blaðamaður Vikudags hitti Ellert í Rósenborg.

„Akureyri er íþróttabær en það er hægt að gera mun betur. Mér finnst að við ættum að stefna á að Akureyri verði yfirlýstur íþróttabær Íslands. Það væri gaman að sjá íþróttamiðstöð hérna í bænum í einhverju formi. T.d. væri mikill styrkur að geta boðið upp á íþróttafræðinám í háskólanum og tengja það við fjölbreytta íþróttastarfsemi í bænum. Hér er mikil nálægð við mörg íþróttafélög og ef við fengjum íþróttafræðinám á háskólastigi á Akureyri með tilheyrandi þekkingu og reynslu værum við að taka mjög stórt skref og komin afar framarlega á íþróttasviðinu.“

throstur@vikudagur.is

Þetta er aðeins brot úr viðtali við Ellert Örn sem má nálgast í heild sinni í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast