Vill efla starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verulega

„Þetta er fyrst og fremst spurning um vilja hins opinbera, heimafólk á hiklaust að fara fram á að starfsemi Sjúkrahússins á Akureyri verði efld verulega,“ segir Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds. Hann flutti erindi á fundi Samtaka atvinnulífsins sem haldinn var í Hofi á Akureyri.  Þar var sérstaklega rætt um mikilvægi þess að skapa fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum og bætt lífskjör þjóðarinnar.

„Sérfræðingum stofnunarinnar hefur heldur fækkað en hitt á undanförnum árum, þeir hafa farið suður eða úr landi. Læknar verða að starfa í ákveðnu umhverfi, annars er hætta á að þeir einangrist í starfi. Stöðug símenntun er nauðsynleg á þessum vettvangi og stunda þarf með markvissum hætti rannsóknir. Þessi þáttur hefur dregist mikið saman hérna fyrir norðan og við því verður að bregðast með ákveðnum og afgerandi hætti. Efling stofnunarinnar er að mínu viti rökrétt svar,“ segir Steingrímur.

Raunhæf leið

Akureyri er mikill skólabær og ég bendi til dæmis á að Háskólinn á Akureyri er með nokkuð öflugar heilbrigðisdeildir. Sjúkrahúsið á Akureyri er í dag skilgreint sem háskólasjúkrahús og ég sé fyrir mér enn frekari samvinnu Sjúkrahússins á Akureyri og Háskólans á Akureyri.

Með því að efla þessar tvær stofnanir styrkjast innviðir samfélagsins, með þeim afleiðingum að umsvif á öllum sviðum aukast. Ég bendi líka á að fyrirhugað er að ráðast í mikla uppbyggingu atvinnulífsins í Þingeyjarsýslum á næstu árum og hérna á Eyjafjarðarsvæðinu er verið að huga að þjónustu við norðurslóðir. Slík uppbygging kallar eðlilega á öfluga heilbrigðisstofnun,“ segir Steingrímur Birgisson forstjóri Hölds.

karleskil@vikudagur.is

Nýjast