Anton Benjamínsson framkvæmdastjóri Slippsins á Akureyri að bærinn hætti að bera sand til að hálkuverja, nema á gangstéttum.
Þegar hlánaði um daginn og mestan klakann tók upp komu afleiðingarnar í ljós, ryk í lofti og bærinn okkar afar skítugur, skrifar Anton í grein sem birtist í síðasta Vikudegi.
"Það er nefnilega þannig að við þær aðstæður að hált verður á götunum gerir sandurinn minna gagn en margur heldur. Þó tel ég að við ættum að hálkuverja (með salti) tvo staði í bænum, Gilið og neðst í Þórunnarstræti.
Sá peningur sem sparast við sandburð og hreinsun mætti síðan brúka til að ryðja götur og gangstíga bæjarins betur en nú er gert.
Og vel að merkja, nota alvöru tæki til moksturs á gangstígum en ekki Barbie-tæki sem hoppa og skoppa ofan á snjónu," segir Anton.
Greinin í heild sinni er undir aðsendar greinar hérna á vikudagur.is