Vill að stjórn LA og framkvæmdastjóri segi af sér

Sigurður Guðmundsson.
Sigurður Guðmundsson.

Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi Bæjarlistans á Akureyri, vill að stjórn Leikfélags Akureyrar og framkvæmdastjóri segi af sér. LA er í miklum fjárhagserfiðleikum og var staða leikfélagsins rædd á fundi bæjarráðs í morgun. Þar var samþykkt að flýta greiðslum ársins 2014 til þess að greiða skuldir og að standa við skuldbindingar sem þegar hefur verið stofnað til vegna yfirstandandi leikárs.


„Ég tel eðlilegt í ljósi þessa að framkvæmdastjóri og stjórn LA segi af sér eigi síðar en 1. júní næstkomandi,“ sagði Sigurður í bókun á bæjarráðsfundi.

 

Bæjarráð getur ekki fært fjármagn frá árinu 2015 til ársins 2014, þar sem að það verður ekki í þess höndum að samþykkja fjárhagsáætlun fyrir það ár. Með þessu er bæjarráði ljóst að Leikfélag Akureyrar getur ekki staðið við skuldbindingar um framleiðslu á leiklist það sem eftir lifir ársins 2014, segir í bókun.


Til skoðunnar er að sameina leikfélagið, Hof og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.


throstur@vikudagur.is

Nýjast