Vill að Sigmundur Davíð hætti við framboð fyrir norðan

Jóhannes Bjarnason fyrrv. bæjarfulltrúi á Akureyri
Jóhannes Bjarnason fyrrv. bæjarfulltrúi á Akureyri

„Þetta er að mínu viti pólitískur dómgreindarbrestur,“ segir Jóhannes Gunnar Bjarnason fyrrverandi bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á Akureyri, um þá ákvörðun Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns flokksins að sækjast eftir fyrsta sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Höskuldur Þórhallsson þingmaður flokksins í kjördæminu vill sömuleiðis fara fyrir listanum og bendir flest til þess að kosið verði á milli þeirra.  „Á margan hátt hefur Sigmundur Davíð staðið sig vel sem formaður og ég tel farsælast að hann bjóði sig fram á höfuðborgarsvæðinu, þar þarf flokkurinn sannarlega að sækja fram.“

 

Jóhannes Bjarni segir að tilkynning formannsins hafi komið flokksfólki fyrir norðan verulega á óvart. „Já, það get ég fullyrt, þetta kom flatt upp á alla og fólk er ennþá á undrunarstiginu. Höskuldur er vel liðinn í kjördæminu, hann hefur staðið sig vel sem þingmaður og verður sterkur leiðtogi flokksins í kjördæminu.“

Hvernig sérðu fyrir þér framhaldið ?

„ Eins og staðan er núna lítur út fyrir að kosið verði á milli þeirra. Ég skil ekki ástæðuna fyrir því að Sigmundur Davíð tók þessa ákvörðun. Út frá hagsmunum flokksins væri heillavænlegast að hann bjóði sig fram í sínu gamla kjördæmi. Það er mín sannfæring.“

karleskil@vikudagur.is

Nýjast