Nýr áfrýjunardómstóll á að hafa höfuðstöðvar á Akureyri og ég vil vinna að því á Alþingi, segir Gísli Tryggvason sem skipar fyrsta sæti á framboðslista Dögunar í Norðausturkjördæmi. Hann segir að opinberri þjónustu hafi verið hagrætt um og á suðvesturhorn landsins með tilheyrandi þjónustuskerðingu og fólksflutningum.
Erfitt er að flytja rótgrónar stofnanir frá höfuðborginni með tilheyrandi raski fyrir starfsfólk og þjónustu. Þess í stað er rétt að nýjum stofnunum sé fundinn staður utan höfuðborgarsvæðisins þar sem aðstæður leyfa eða krefjast. Sem dæmi um það má nefna nýtt millidómstig sem lögfræðingasamfélagið er einhuga um að tímabært sé. Nýr áfrýjunardómstóll á að hafa höfuðstöðvar á Akureyri og ég vil vinna að því á Alþingi.
Sjá nánar grein Gísla á vikudagur.is aðsendar greinar
http://vikudagur.is/vikudagur/adsendar-greinar/2013/02/28/taekifaeri-%E2%80%93-fyrir-alla-landshluta