Vilja nýtt hundasvæði innan bæjarmarkanna

María Björk Guðmundsdóttir formaður Félags hundaeigenda á Akureyri norðan Borga. Mynd/Margrét Þóra.
María Björk Guðmundsdóttir formaður Félags hundaeigenda á Akureyri norðan Borga. Mynd/Margrét Þóra.

„Við erum himinlifandi yfir því að framkvæmdaráð tók jákvætt í erindi okkar, en gerum okkur grein fyrir því að málið er ekki í höfn,“ segir María Björk Guðmundsdóttir formaður Félags hundaeigenda á Akureyri. Félagið sendi erindi til framkvæmdaráðs um hundasvæði innan bæjarmarkanna og lagði til að því yrði fundinn staður í námunda við Háskólann á Akureyri, svæði sem afmarkast af Dalsbraut, Borgarbraut og Norðurslóð. Framkvæmdaráð lýsti yfir ánægju með tillöguna og fól starfsmönnum ráðsins að vinna áfram að málinu.

„Hundaeigendur á Akureyri hafi í mörg ár talað um nauðsyn þess að koma upp hundasvæði innan bæjarmarkanna, en af ýmsum ástæðum hefur aldrei orðið neitt úr,“ segir María Björk, en hún var nýlega kjörin formaður

Félags hundaeigenda á Akureyri og segir að ný stjórn hafi sett sér metnaðarfull markmið varðandi starfsemina. Meðal annars að vinna að framgangi þess að hundasvæði verði fundinn staður innan bæjarmarkanna. „Við óskuðum eftir því að fá þetta fallega svæði til afnota, það er um 3000 fermetrar að stærð og okkar hugmynd er sú að skipta því upp og útbúa sérstakt svæði innan þess fyrir smáhunda,“ segir hún.

Nánar er rætt við Maríu í prentútgáfu Vikudags.

Nýjast