Fulltrúar Aflsins, samtaka um kynferðis- og heimilisofbeldi á Akureyri, leggja þunga áherslu á að koma upp kvennaathvarfi í bænum. Anna María Hjálmsdóttir, formaður Aflsins, segir brýna þörf fyrir kvennaathvarf en mikil aukning hefur orðið í komum til samtakana undanfarin ár.
Það þarf að bregðast við þessari þróun og við heyrum frá mörgum af okkar skjólstæðingum að þeir vilji fá kvennaathvarf. Það er athvarf í Reykjavík sem er eina sinnar tegundar á landinu, Þar er alltaf fullsetinn bekkurinn. Við þurfum oft að senda skjólstæðinga okkar suður en það getur verið heilmikið mál."
Nánar um þetta mál í prentútgáfu Vikudags