Vilja banna umskurð og aðrar limlestingar á kynfærum kvenna

Fjölmennur fundur, haldinn á Hótel KEA að frumkvæði Zontaklúbbanna á Akureyri, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars, samþykkti eftirfarandi ályktun: 

Klámvæðing og útlitsdýrkun hefur leitt til hættulegrar þróunar, ekki síst varðandi kynheilbrigði kvenna. Samfélagið allt, stjórnvöld, heilbrigðis- og menntakerfi og foreldrar, þarf að spyrna við fótum og berjast gegn  limlestingum á kynfærum kvenna en aðgerðir á kynfærum kvenna  hafa færst mjög í vöxt á síðustu árum. Sérstaklega hefur fjölgað aðgerðum þar sem innri skapabarmar kvenna eru skornir og styttir.

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO skilgreinir ýmsar aðgerðir á kynfærum kvenna sem limlestingar, til dæmis brottnám hluta kynfæra og það að setja lokka í kynfæri. 

Fundurinn skorar á Alþingi að setja hið allra fyrsta lög sem banna umskurð og aðrar limlestingar á kynfærum kvenna  í samræmi við Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins.

Nýjast