Um 120 til 150 skemmtibátar eru á Akureyri og hafa eigendur þeirra ítrekað óskað eftir lækkun viðlegugjalds í Sandgerðisbót, sem Hafnasamlag Norðurlands innheimtir. Akureyrarbær er langstærsti eigandi samlagsins.
Samkvæmt bréfi sem eigendur bátanna sendu Akureyrarbæ í nóvember í fyrra kemur fram að pláss við flotbryggju kostaði á síðasta ári liðlega 130 þúsund krónur. Stjórn Hafnasamlags Norðurlands hefði svarað því til að ekki væri hægt að lækka gjaldið, þar sem tap hefði verið af rekstri smábátahafnarinnar.
Fulltrúar smábátaeigenda hafa rætt málið við nokkra bæjarfulltrúa, án mikils árangurs. Í þeim viðræðum hafa þeir meðal annars bent á að 400 til 500 manns hafi not af skemmtibátunum, sem eru með legupláss í Sandgerðisbót.
Þeir benda jafnframt á að bærinn hafi lagt um 250 milljónir króna í rekstur og starfsemi Golfklúbbs Akureyrar á síðustu árum og um 150 milljónir í reiðhöll, auk árlegra rekstrarstyrkja. Þeir segja að gjald vegna viðlegupláss sé 100% hærra en árgjaldið í Golfklúbbi Akureyrar og munurinn sé enn meiri ef miðað væri við árgald í hestamannafélagi bæjarins.
Þeir fara fram á að slík mismunun vegna frístundastarfs í bænum verði leiðrétt og að erindið verði rætt í bæjarráði og þar tekin afstaða til málsins.
Sorphirðugjald hefur verið lækkað verulega og eru eigendur skemmtibátanna sáttir við núverandi gjaldskrá.
Þeir sem eiga skemmtibáta hafa almennt ekki tekjur af bátunum, heldur eru þeir fyrst og fremst notaðir til skemmtunar, náttúruskoðunar og útiveru.